145. löggjafarþing — 164. fundur,  5. okt. 2016.

fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.

638. mál
[18:27]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Forseti. Þetta er mjög áhugaverð umræða vegna þess að það er sannarlega ein af okkar stærstu áskorunum að fleiri landshlutar fái að njóta þeirrar innspýtingar sem fjölgun ferðamanna felur í sér. Þá værum við að tala um að heilsársferðamennska væri víðar um land. Við sjáum það núna að á þeim svæðum sem fjærst eru Reykjavík erum við enn með einhvern hluta, kannski þriðjung eða fjórðung, af árinu sem um er að ræða rekstur á öflugri ferðaþjónustu. Þá værum við að tala um heilsársferðamennsku, þá værum við að tala um störf og þá værum við að tala um þúsund þorska á færibandinu í þessum skilningi, sem væru að spýta inn krafti í fleiri byggðarlög en bara hér á höfuðborgarsvæðinu.

Kannski er miklu meira vit í því, frekar en að vera að ræða einstakar útfærslur að því er varðar gistináttagjald eða eitthvað slíkt, að setja það inn í langtímasýn að raunverulegur möguleiki sé á því að innanlandsflugið komi í beinu framhaldi af millilandafluginu með flugvelli í Hvassahrauni.

Ég vil líka segja að Hvassahraunsflugvöllur er góður kostur fyrir innanlandsflugið fyrir okkur sjálf. Hann er staðsettur mjög miðlægt á höfuðborgarsvæðinu. Ef við erum að horfa á fjarlægðir þá erum við korter frá Hvassahrauni í Kringluna, en við erum kannski tíu mínútur úr Vatnsmýrinni í Kringluna. Þetta eru ekki slíkar fjarlægðir sem fólk er vant að hugsa um. Ég endurtek, vegna þess að verið er að tala um gríðarlegan kostnað sem felst í þessu öllu saman, að það liggja töluvert mikil verðmæti í landinu í Vatnsmýrinni sem færu á flot með þessu öllu saman. Ég hef engar efasemdir um að þarna séum við farin að breyta þessari umræðu í þá veru að þetta sé ekki lengur spurning um póla á milli (Forseti hringir.) höfuðborgar og landsbyggðar heldur séu þetta sameiginlegir hagsmunir okkar allra.