145. löggjafarþing — 164. fundur,  5. okt. 2016.

dagskrártillaga.

[19:49]
Horfa

Forseti (Þórunn Egilsdóttir):

Forseta hefur borist eftirfarandi dagskrártillaga og eftirfarandi bréf:

„5. október 2016.

Við undirrituð gerum það að tillögu okkar, í samræmi við 1. mgr. 77. gr. þingskapalaga, að dagskrá næsta fundar verði svohljóðandi:

1. Gjaldeyrismál, frv., 826. mál, þskj. 1556. — 3. umr.

2. Tekjustofnar sveitarfélaga, frv., 263. mál, þskj. 290. — 2. umr.

Við óskum eftir því að þessi tillaga verði borin upp til afgreiðslu í samræmi við áðurnefnda grein þingskapa.“

Undir þetta rita bréf rita hv. 9. þm. Reykv. s., Helgi Hjörvar, hv. 10. þm. Norðaust., Brynhildur Pétursdóttir, hv. 10. þm. Reykv. s., Ásta Guðrún Helgadóttir, og hv. 5. þm. Reykv. s., Svandís Svavarsdóttir.