fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni um gott samstarf í nefndinni. Við vorum alveg sammála þar. Ég er líka ánægður með að við komum sameiginlega að málinu og hvernig þau taka undir nefndarálitið og hrósa fólki fyrir það í staðinn fyrir að vera eitthvað að karpa um kosningaplagg og annað slíkt. Við erum sammála um að þetta á að vera svona og þá þurfum við ekki að rífast um það, heldur hjálpumst við að við að komast að niðurstöðu. Það eiga allir þakkir skildar fyrir að svona fór.
Við erum algjörlega sammála um að við þurfum að gera þetta á sem skynsamlegastan hátt. Við förum hér í gríðarlegar fjárfestingar í samgöngumálum. Þær geta haft gríðarleg áhrif og þá er langbest að nýta þær á sem hagkvæmastan og skynsamlegastan hátt með áætlanagerðum og stefnumörkun. Það á ekki að vera þannig að þeir sem hafa flesta þingmenn eða eru frekastir að berjast fái sínu framgengt, sem skilar síðan ekki mestu til samfélagsins. Það er ekki góð nýting á fjármunum almennings, alls ekki. Margir verða eflaust svolítið hræddir í upphafi um að þeirra svæði verði út undan af því að þau eru fámenn og langt í burtu. Það er alls ekki svo. Í þeim gögnum sem ég hef vitnað í er einn hættulegasti vegur landsins austur á Héraði. Þar er einn hættulegasti vegur landsins sem mundi skora mjög hátt í forgangsröðuninni og margir fleiri vegir.
Ef við erum með ákveðna stefnumörkun verður samt að vera eitthvert svigrúm til að bregðast við breyttum aðstæðum, þannig að mál eins og Reykjanesbrautin frá Fitjum hefði ekki komið hér inn. Við hefðum bara séð að farþegafjölgunin væri svona mikil, íbúafjölgunin svona og fjölbreytni iðnaðar svona. Við verðum að bregðast strax við og breyta áætlunum og setja svona verk inn þannig að ekki þurfi að berjast fyrir því af því að það er aftast í röðinni. Það gengur ekki upp.