fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Herra forseti. Ég þakka þingmanninum ræðuna. Ég er nú að hugsa um að halda bara áfram þarna, þetta er svo áhugavert samtal og snertir kannski alla þessa fleti sem við viljum ræða og þingmaðurinn ræddi sjálfur áðan, það eru umferðaröryggismálin. Ég keyri nú mikið eins og ég veit að þingmaðurinn gerir þótt við viljum kannski hvorugt okkar tala mikið fyrir einkabílastefnunni heldur frekar einmitt auknum almenningssamgöngum sem ég held að sé framtíðarsýnin. Svo ég vaði nú úr einu í annað þá er það þetta með unga fólkið, að það noti í rauninni bara almenningssamgöngur þangað til það fær bílpróf, það er auðvitað partur af þessari hugsun sem við erum alin upp við. Um leið og almenningssamgöngurnar verða þannig að fólki finnst þær vera partur af kúltúrnum, ef maður getur slett, þá verða þær ofan á. Mér finnst við vera að færast í þá átt, þ.e. yngra fólkið okkar. Sérstaklega þegar það er búið að búa erlendis, er komið upp úr framhaldsskólanum og komið í háskóla og hefur búið erlendis, þá er þetta miklu sjálfsagðara.. En þá rekumst við alltaf á þennan vegg að þær eru svo ólíkar okkar almenningssamgöngur eins og gerist auðvitað í stærri borgum. Ég held að þetta sé eitthvað sem á eftir að verða, ég bara treysti því að við gerum þetta almennilega, sérstaklega með tilliti til loftslagsmarkmiðanna, með tilliti til umferðaröryggis, forvarna og allra þeirra þátta. Þetta er eitt af mikilvægari verkefnunum, líka til þess að minnka álagið á vegina og innviðina, almenningssamgöngur eru hluti af því.
Þingmaðurinn nefndi þungaflutningana og trukkana sem maður mæti hverjum á fætur öðrum þrisvar í viku ef maður er á ferðinni, gríðarlegur fjöldi á sömu leið og bara það segir mér að (Forseti hringir.) við ættum í rauninni að huga alvarlega að því að taka upp strandsiglingarnar aftur.