145. löggjafarþing — 167. fundur,  10. okt. 2016.

varamenn taka þingsæti.

[10:33]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Elín Hirst, 13. þm. Suðvest., geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Óli Björn Kárason.

Óli Björn Kárason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá 10. þm. Reykv. n., Helga Hrafni Gunnarssyni, um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Halldóra Mogensen.

Halldóra Mogensen hefur áður tekið sæti á Alþingi og er hún boðin velkomin til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Samfylkingarinnar um að hv. 11. þm. Suðvest., Katrín Júlíusdóttir, geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Margrét Gauja Magnúsdóttir. Fyrsti varamaður á lista í kjördæminu hefur boðað forföll.

Margrét Gauja Magnúsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.