145. löggjafarþing — 167. fundur,  10. okt. 2016.

frumvarp um raflínur að Bakka.

[10:36]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti getur staðfest það sem hv. þingmaður var að segja. Þessi vinna er þegar hafin. Ætlun forseta er að hefja umræðuna um þetta tiltekna mál hér á eftir og vekur athygli á því að hlé verður gert á þingfundum frá kl. 12 til kl. 15 og því ætti að gefast gott næði og tími til að fara yfir þessi mál.