145. löggjafarþing — 167. fundur,  10. okt. 2016.

raflínur að iðnaðarsvæðinu á Bakka.

876. mál
[11:27]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Jón Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í 3. gr. frumvarpsins stendur:

„Við ákvæði til bráðabirgða í lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, með síðari breytingum, bætist nýr töluliður sem orðast svo: Þrátt fyrir ákvæði 61. gr. gildir 37. gr. laga um náttúruvernd, nr. 44/1999, hvað varðar útgáfu leyfis til framkvæmda liggi fyrir álit um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdar fyrir gildistöku laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.“

Þetta kemur til með að hafa möguleg áhrif á aðrar framkvæmdir sem voru og eru langt komnar í undirbúningi og það hefur komið fram gagnrýni á að þessi lög skuli ekki eingöngu taka til þessa verkefnis á Bakka. Samkvæmt minnisblaði sem nefndin fékk frá iðnaðarráðuneytinu kemur fram að það mundu þykja sértæk lög og sérstök ívilnun gagnvart þessu sérstaka verkefni ef svo hefði verið haldið á málum. Lögin þurfa því að vera almenn, en við setjum á þetta sólarlagsákvæði og látum það gilda út árið 2017. Það er auðvitað gert með hliðsjón af því að ég held að almenn skoðun sé sú, alla vega hjá meiri hlutanum, að skoða þurfi breytingar á náttúruverndarlögunum hvað þetta varðar og því skipulagsferli sem á sér stað við undirbúning framkvæmda. Það sé mjög áríðandi að framkvæmdaleyfi sé gefið út fyrr í ferlinu þannig að ekki geti komið til þeirrar stöðu sem hefur myndast á Bakka.

Það er alveg ljóst í mínum huga og margra fleiri sem stóðu að setningu nýrra laga um náttúruvernd að það var ekki hugmyndin að þetta gæti haft afturvirk áhrif á þau verkefni sem komin voru svo langt í undirbúningi eins og raun ber vitni á Bakka. Það gefur augaleið, virðulegur forseti, að ef slík ráðstöfun væri viðhöfð og væri í löggjöf okkar yrði hér lítið um framkvæmdir, þá mundu fáir aðilar leggja í veigamikla vinnu og kostnaðarsama til þess að fara (Forseti hringir.) í stórar framkvæmdir ef þeir ættu yfir höfði sér að þær yrðu stöðvaðar á lokametrum.