opinber innkaup.
Frú forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti fjárlaganefndar eftir 2. umr. um frumvarp til laga um opinber innkaup. Við fengum ábendingu milli umræðna sem okkur þótti vert að taka fyrir, hún varðar 88. gr. frumvarpsins sem fjallar um undirverktaka. Þar var um að ræða að kaupanda væri heimilt að greiða vangoldnar launagreiðslur til undirverktaka á kostnað aðalverktaka ef hann stæði ekki í skilum með launatengdar greiðslur. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að það væri betra að fella þetta á brott þó að hún hafi skilning á því að með þessum hætti sé kannski verið að nálgast keðjuábyrgðina svokölluðu sem rætt hefur verið um, en við töldum að það yrði ekki uppfyllt með þessu og ákváðum því að betra væri að lagfæra þessa grein og útfæra áður en hún kæmi inn í lagatexta.
Síðan lagði nefndin tillögu um tvær aðrar breytingar, annars vegar leiðréttingu á millivísun og hins vegar lagfæringu á a-lið 1. mgr. 66. gr. Þær eru hér lagðar fram.
Undir nefndarálitið rita hv. þingmenn Vigdís Hauksdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Oddný G. Harðardóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Brynhildur Pétursdóttir, Ásmundur Friðriksson, Páll Jóhann Pálsson og Ásmundur Einar Daðason.
Við í minni hlutanum höfum verið með fyrirvara sem hefur snúið að viðmiðunarfjárhæðum vegna innkaupa sveitarfélaga. Ég hef sjálf líka rætt töluvert um að mér finnist ekki að sveitarfélögin eigi að falla undir kærunefndina. Það eru auðvitað kostir og gallar eins og í öllum málum við það, en ég hef haft þá skoðun að sveitarfélögin hefðu átt að halda sínum innkaupareglum þar sem þeim hafa ekki borist einhverjar formlegar kærur vegna þeirra. Ég hefði því talið að það færi betur á því að þau féllu ekki þarna undir.
Á hinn bóginn vill maður auðvitað að fólk hafi tækifæri til þess að koma málum sínum á framfæri og kvarta yfir þjónustu eða útboðum eða öðru slíku, en það er alveg hægt að gera það þó að það þurfi ekki að fara fyrir kærunefnd útboðsmála og það hefur verið auðvitað ferli hjá sveitarfélögunum til þess að gera það.
En sveitarfélögin hafa talað um það, sérstaklega þau stóru, að þetta geti kostað mikla fjármuni, þetta verði til þess að kerfið verði flóknara, það þurfi að leggjast í enn þá frekari vinnu og jafnvel að ráða inn fólk til þess að ná utan um þetta. Hefur verið bent á það að í öðrum löndum hafi kostnaðurinn aukist úr hófi fram, m.a. í Danmörku, og eins hafi viðmiðunarfjárhæðirnar líka verið færðar til frá því sem var. Ég hef haft þá skoðun að við séum svolítið að byrja þar sem nágrannalöndin hafa verið að færa sig frá.
Svo er hitt, þegar við tölum um eitthvað sem þarf að gerast með tiltölulega skömmum fyrirvara og eins og við vitum er verktíminn hjá sveitarfélögum gjarnan stuttur sökum tíðarfarsins hjá okkur. Ef það er hægt að stöðva samningsgerð eða eitthvað slíkt þá geta verk auðvitað frestast. En við teljum okkur vera viss um að þetta eigi ekki að stöðva framkvæmdir og því er þetta lagt til. Vonandi þarf ekki að reyna á það, að svo sé kannski ekki raunin þegar upp verður staðið, því að það er auðvitað ein af ástæðunum fyrir því að við leggjumst ekki beint gegn því með formlegri tillögu, þ.e. draga þetta atriði til baka.
Ég ætla ekki að lengja umræðuna. Við ræddum þetta ágætlega við 2. umr. En ég hef enn þá þessa fyrirvara þar sem mér hefur ekki fundist það hafa verið hrakið að reglur sveitarfélaganna með nýju sveitarstjórnarlögunum sem tóku gildi á síðasta kjörtímabili hafi virkað ágætlega.