145. löggjafarþing — 167. fundur,  10. okt. 2016.

vextir og verðtrygging.

817. mál
[17:36]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Eins og sjá má af þingskjölum í þessu máli náðist ekki meiri hluti í nefndinni fyrir einni niðurstöðu í málinu, sem hlýtur nú að sæta ákveðnum tíðindum. Hér er um að ræða stjórnarfrumvarp til laga um breytingar á lögum um vexti og verðtryggingu, þ.e. sú breyting sem kynnt var með talsverðri viðhöfn í Hörpu í kjölfar umræðu um að ríkisstjórnin mundi bráðlega kynna aðgerðir sínar til að afnema verðtryggingu. Þeir sem áttu von á því að afnám verðtryggingar yrði kynnt á þessum Hörpufundi hafa væntanlega orðið fyrir verulegum vonbrigðum enda er frumvarpið hvorki fugl né fiskur í þá átt. Ýmsir umsagnaraðilar sem áhugasamir eru um afnám verðtryggingar benda einmitt á í umsögnum sínum að nær hefði verið að banna verðtryggð útlán. Raunar er það mitt mat sem hér stend að ekki þurfi síður að ræða verðtryggingu fjármagns hér á landi ef stefna á að afnámi verðtryggingar.

Hvað er þá lagt til? Jú, í frumvarpinu er lagt til að frá og með 1. janúar 2017 verði óheimilt að veita neytendalán til lengri tíma en 25 ára, sé það verðtryggt og með jafngreiðslufyrirkomulagi. Þótt það sé orðið svo er samt sem áður tekið fram að áfram verði heimilt að veita slík lán að fullnægðum tilteknum skilyrðum sem varða aldur og tekjur lántaka. Ekki er því verið að banna 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán, heldur er verið að leggja til ákveðnar takmarkanir á slíkum lánum sem verið hafa ein algengasta tegund fasteignalána hér á landi.

Þegar greinargerð með frumvarpinu er lesin kemur fram það yfirlýsta markmið að stemma eigi stigu við þeirri hættu sem felist í verðtryggðum langtímafasteignalánum og er vísað til þess ókosts slíkra lána að greiðslum af höfuðstól er frestað þannig að eignamyndun verður hæg og jafnvel neikvæð. Einnig kemur fram í athugasemdum við frumvarpið að árið 2015 hafi verðtryggð jafngreiðslulán til 40 ára numið u.þ.b. 78% allra nýrra íbúðalána. Það er umhugsunarefni af hverju tæplega 80% nýrra íbúðalána eru tekin með þeim skilmálum. Mun ég koma nánar að því á eftir. Því má segja að með þessu frumvarpi hyggist ríkisstjórnin stíga inn í hegðun á lánamarkaði. Þó má gera ráð fyrir að 30–50% lántaka falli undir undanþáguákvæði frumvarpsins vegna aldurs, 5–10% vegna tekna og 5–15% vegna veðsetningar. Í heildina má því gera ráð fyrir að allt að 75% lántaka falli undir undanþáguákvæði frumvarpsins og þeir hafi þannig áfram heimild til að taka verðtryggð jafngreiðslulán til lengri tíma en 25 ára.

Hér eru því eru settar takmarkanir á 40 ára verðtryggð jafngreiðslulán en ekki gert ráð fyrir, þó að þær takmarkanir séu víðtækari þetta, að reikna megi með því að 75% allra lántakenda geti áfram átt rétt á slíkum lánum. Það er umhugsunarefni að tæplega 80% lána hafi verið undir með þessum skilmálum á þessu ári. Það sýnir væntanlega að þeir sem taka lánin gera það vegna þess að þeir telja mikilvægt að hafa einhvern fyrirsjáanleika í greiðslubyrði þrátt fyrir hina augljósu ókosti við lánin. Því var velt upp á nefndarfundum, bara svo það sé sagt, hvort lántakendur væru almennt meðvitaðir um kosti og ókosti þessa lánaforms. Jafnvel var því fleygt að tilgangur með þessum takmörkunum væri fyrst og fremst að vekja fólk til umhugsunar um áhættuna sem fylgdi slíkum lánaformum. En þá má spyrja sig hvort ekki sé eðlilegra að leggja upplýsingaskyldu á þá sem veita slík lán að fara ítarlega yfir kosti og galla þessara lána, því að ég á nú bágt með að trúa því að 80% lántakenda á árinu 2015 gangi blindandi inn í það að taka slík lán, svo ég segi það.

Ég vil nefna hér að umsagnir um frumvarpið voru afar misjafnar og kemur það fram í nefndaráliti 1. minni hluta. Í umsögnum Alþýðusambandsins og Íbúðalánasjóðs er til að mynda lýst sérstökum áhyggjum af tekjulágum heimilum. Þessi lán hafa einmitt verið tekin af tekjulágum heimilum, og það er væntanlega ástæða þeirrar undanþágu sem lögð er til vegna þess að greiðslubyrðin af þeim er fyrirsjáanlegri en af óverðtryggðum lánum.

Í umsögn Alþýðusambands Íslands er bent á að áfram muni reynast ungu fólki og tekjulágum heimilum erfitt, eða jafnvel ómögulegt, að ráða við greiðslubyrði styttri lána og/eða óverðtryggðra lána, en undanþágurnar geri það hins vegar að verkum þessi hópur eigi áfram kost á þessum lánum sem þó eru sögð svo áhættusöm í greinargerð með frumvarpinu. Það má því segja að þarna stangist markmið frumvarpsins á. ASÍ bendir enn fremur á að ekki sé gerð nein tilraun með þessum breytingum til að takast á við hinn raunverulega vanda sem felist í háum vöxtum og gölluðu húsnæðislánakerfi.

Þá er líka rétt að nefna að Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið lýsa efasemdum um þá tilhögun sem hér er lögð til. Í umsögn sinni bendir Seðlabankinn á að helsti kostur verðtryggðra lána fyrir lántakendur og lánveitendur sé hinn margreyndi fyrirsjáanleiki í raungreiðslubyrði og lýsir efasemdum um þá leið að banna tiltekið lánsform, það muni í besta falli fækka valkostum þeirra sem sækja sér lánsfé. Hins vegar er bent á það í umsögn Fjármálaeftirlitsins, sem var eftirtektarverð, að önnur lánsform kunni að koma fram, t.d. með svokölluðu vaxtagreiðsluþaki, sem hafi að mati Fjármálaeftirlitsins í raun sömu eiginleika og verðtryggð jafngreiðslulán, þannig að takmörkun þeirra leysi ekki þann vanda sem henni er ætlað að leysa. Vænlegri leið sé að setja reglur um hámarksveðsetningarhlutfall eins og gert hafi verið annars staðar á Norðurlöndum, en að auki hafi Svíþjóð og Noregur sett reglur um lágmarksafborgunarhlutfall til að tryggja eignamyndun í húsnæði.

Það sem stendur eftir er að þær umsagnir, og ég hef hér tæpt á nokkrum þeirra, og mál þeirra gesta sem komu á fund efnahags- og viðskiptanefndar endurspegla hversu óljós markmið þessa frumvarps eru. Algjörlega er óvíst hvort þær leiðir sem lagðar eru til skili nokkrum árangri í þeim óljósu markmiðum sem eiga að vera undirstaða frumvarpsins. Það er því ekki bara óljóst að leiðirnar skili árangri, heldur eru sjálf markmiðin mjög óljós í ljósi þess að hin yfirlýstu markmið eru að stemma stigu við tilteknu lánsformi sem verður samt áfram í boði fyrir 75% lántakenda samkvæmt sjálfu frumvarpinu.

Það er því niðurstaða þeirra sem rita undir þetta álit að frumvarpið sé fyrst og fremst leið til ná sáttum í augljósum skoðanaágreiningi stjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, um verðtrygginguna en það sé algjörlega á huldu hvaða áhrif ákvæði frumvarpsins muni hafa. Það er algjörlega ljóst að fortakslaust loforð Framsóknarflokksins fyrir síðustu kosningar um afnám verðtryggingar verður ekki efnt með þessu máli.

Hv. þm. Birgitta Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi í efnahags- og viðskiptanefnd, lýsir sig fylgjandi þessu áliti.

Undir það rita sú sem hér stendur og hv. þm. Guðmundur Steingrímsson.

Það verður ekki annað sagt, frú forseti, en að hér sé mál sem óljóst er hvert eigi að fara, hvaða leið eigi að fara, hvaða árangri málið eigi að ná, hvaða markmið það eigi að uppfylla. Sjaldan hef ég séð jafn augljóst dæmi um einhvers konar málamiðlun milli ólíkra flokka nánast til þess að geta sett X í eitthvert skjal á blaði, einhver loforð sem búið var að gefa í samstarfinu. Það er hálffurðulegt, herra forseti, að verið sé að nýta tíma Alþingis, sem er af skornum skammti nú þegar minna en þrjár vikur eru til kosninga, að vera að eiga við svona málatilbúnað.