145. löggjafarþing — 167. fundur,  10. okt. 2016.

vextir og verðtrygging.

817. mál
[17:53]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta efh.- og viðskn. (Frosti Sigurjónsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti og breytingartillögu frá 3. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vexti og verðtryggingu, en breytingin fjallar um takmarkanir á veitingu verðtryggðra jafngreiðslulána til lengri tíma en 25 ára. Álitið ásamt breytingartillögu er að finna á þskj. 1709 og ég mun nú reifa efni þess í mjög stuttu máli.

Nefndinni bárust 13 erindi um málið og fékk hún á sinn fund fulltrúa frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, Alþýðusambandi Íslands, Fjármálaeftirlitinu, Íbúðalánasjóði, Landssamtökum lífeyrissjóða, Neytendastofu, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum fjármálafyrirtækja og Seðlabanka Íslands. Nefndin átti einnig símafund með dr. Ólafi Margeirssyni hagfræðingi.

Með frumvarpinu er lagt til að óheimilt verði að veita neytendalán til lengri tíma en 25 ára sé lánið verðtryggt og með jafngreiðslum. Með því er komið til móts við tillögur sérfræðingahóps um afnám verðtryggingar á neytendalánum, en ein af tillögum hópsins var að banna verðtryggð lán til lengri tíma en 25 ára. Gerðar eru undantekningar frá þeirri meginreglu vegna yngri lántaka, tekjulægri lántaka og í þeim tilfellum sem veðhlutfall er undir 50%.

Í skýringum frumvarpsins kemur fram að fyrstu tvo áratugi 40 ára verðtryggðs jafngreiðsluláns heldur höfuðstóllinn áfram að hækka, enda er hluta verðbólguþáttarins velt yfir á höfuðstólinn. Eignamyndun er því mjög hæg og þegar líður að lokum lánstímans verður greiðslubyrðin þung. Með því að draga úr vægi verðtryggðra jafngreiðslulána í samfélaginu má efla virkni stýrivaxta Seðlabankans, þeir gætu því orðið lægri öllum lántakendum til hagsbóta.

Þriðji minni hluti nefndarinnar gerir í ljósi ábendinga nokkrar tillögum að breytingum sem nú verða raktar.

Takmörkun frumvarpsins á lengd verðtryggðra jafngreiðslulána nær aðeins til veitingu lána en ekki yfirtöku þeirra svo sem í tengslum við kaup á fasteign með áhvílandi láni. Bent var á að heimild til yfirtöku gæti leitt af sér bjögun á fasteignamarkaði. Að mati 3. minni hluta eiga þau rök sem færð eru gegn veitingu verðtryggðra lána jafnt við um yfirtöku lána. 3. minni hluti leggur því til að takmörkunin um veitingu umræddra lána eigi einnig við um yfirtöku þeirra.

Frumvarpið tekur til neytendalána og komu fram óskir um að hugtakið neytendalán verði skýrt nánar. 3. minni hluti leggur til að í stað orðsins neytendalán verði miðað við hugtakið „lán með veði í íbúðarhúsnæði“ og það sé skýrara.

Í frumvarpinu er lántökum skipt niður á aldursbil sem hvert um sig spanna fimm ár. Fyrir hvert bil er tilgreindur hámarkslánstími. Bent var á að þrepaskipting af þessu tagi væri óheppileg því hún torveldaði endurfjármögnun láns þegar lántaki færðist á milli aldursþrepa. Þannig gæti t.d. lántaki sem hefði tekið 40 ára lán þegar hann var 34 ára ekki endurfjármagnað það ári síðar nema með láni til mun skemmri tíma og með meiri greiðslubyrði. Til að draga úr þessum áhrifum er í stað þriggja aldursbila lögð til formúla sem skilar samfelldari niðurstöðu.

Þriðji minni hluti telur einnig æskilegt að tilgreint sé í lögum að lánstími verðtryggðra jafngreiðslulána geti ekki orðið lengri en 40 ár og leggur til breytingu þess eðlis.

Í frumvarpinu er veitt undantekning frá takmörkunum ef veðsetningarhlutfall verður ekki hærra en 50% á lántökudegi. Þar sem höfuðstóll verðtryggðra lána getur hækkað almennt fyrstu árin og ef verð fasteignar hækkar ekki til samræmis gæti veðsetningarhlutfallið hækkað þótt lántaki taki ekki frekari lán. Takmörkun við 50% veðsetningarhlutfall á lántökudegi gæti því torveldað endurfjármögnun slíks láns síðar og þannig orðið samkeppnishindrun. Til að bregðast við því leggur 3. minni hluti til að hlutfallið megi vera hærra ef um er að ræða endurfjármögnun á eldra láni og veðsetningarhlutfallið hækkar ekki frá því sem áður var.

Þriðji minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem fram koma á þskj. 1709.

Eftirtaldir hv. þingmenn rita undir álitið þann 22. september 2016: Frosti Sigurjónsson, formaður og framsögumaður, Brynjar Níelsson, með fyrirvara, Líneik Anna Sævarsdóttir og Willum Þór Þórsson.