145. löggjafarþing — 167. fundur,  10. okt. 2016.

vextir og verðtrygging.

817. mál
[18:17]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta efh.- og viðskn. (Valgerður Bjarnadóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér finnst bara óeðlilegt með öllu að löggjafinn sé að setja einhverjar reglur um það hvort fólk megi taka lán eða megi ekki taka lán. Það er einfaldlega þannig. Fólk ber ábyrgð á sér sjálft og hlýtur að geta fengið að taka þau lán sem það vill. Ég trúi ekki á það að löggjafinn eigi að hafa vit fyrir fólk í þeim efnum. Það er svo einfalt. Ég verð aldrei sammála hv. þingmanni um að þessi skilyrði í frumvarpinu séu góð. Það getur vel verið að fólk geti lifað með þeim, ég er bara tala um prinsippið.

Ég vék að því í inngangi mínum áðan að það er ekki bara litla hagkerfið og gjaldmiðillinn sem hefur gert það hér að verkum að efnahagslífið hefur verið í þeim sveiflum sem það hefur verið heldur líka fábreytni í atvinnuvegunum. Sem betur fer er það að breytast. Það er breytast. Það er ekki þannig að við þurfum að haga allri efnahagsstjórn eftir því hvernig gengur í sjávarútveginum eins og var í mörg, mörg ár. Sem betur fer er það orðið þannig að sjávarútvegsfyrirtækin standa virkilega undir sínu og eru grunnstoð hér. Áður þurfti efnahagslífið að hreyfa sig meira eftir sjávarútveginum. Þetta er náttúrlega gjörbreyting, virðulegi forseti. Síðan erum við með ferðaþjónustuna, síðan eru komnar skapandi greinar og nýsköpun og alls konar þannig. Það horfir allt til betri vegar um (Forseti hringir.) að efnahagslíf hér í framtíðinni verði væntanlega stöðugra en það hefur verið hingað til.