145. löggjafarþing — 168. fundur,  11. okt. 2016.

aðgerðir stjórnvalda gegn skattsvikum o.fl.

787. mál
[15:55]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Fyrst hvað varðar þunnu eiginfjármögnunina þá er það svo að þær tillögur sem hér eru lagðar til, þ.e. að heimildin sé takmörkuð við 30% af hagnaði skattaðila og síðan séu lagðar til undantekningar, eru í takt við frumvarpið sem sú sem hér stendur lagði fram í vor. Ég tók þær tillögur beint upp frá starfshópnum. Síðan kom ráðuneytið með tillögu um að ganga lengra og miða við 25%. Eftir umræðu í nefndinni var ákveðið að leggja það til að halda sig við tillögur starfshópsins og þar með mína tillögu, þannig að ég get eðlilega ekki verið mjög önug yfir því. En eins og sagt er í nefndarálitinu, og ég er sammála því, kann að vera tilefni til að lækka hlutfallið þegar reynsla er komin á takmörkunina. En það sem er mikilvægt er að við erum komin með prinsippið inn, eða grundvöllinn, við erum komin með þennan lagabókstaf inn, ef þetta verður samþykkt, og þá er minni vandi að móta þetta hlutfall seinna meir. Ég er því alveg sátt við þessa lendingu þó að þetta sé ekki heilög tala. Þetta er þó það hlutfall sem er miðað við í nágrannalöndunum og þá erum við með sambærilegar reglur og þar eru.

Um það sem hv. þingmaður segir um þetta stóra grundvallaratriði, um leyndina og gagnsæið, vil ég segja, eins og ég sagði í lok ræðu minnar: Við erum búin að byggja upp kerfi sem byggist á ákveðnum viðmiðum um bankaleynd, þar sem tiltekin ríki hafa jafnvel byggt efnahag sinn á að vera leyndarhjúpur fyrir upplýsingar. Fleiri og fleiri stíga fram og gagnrýna þennan lið af því að við erum jú innan okkar ríkja, innan okkar heimshluta, að reyna að setja reglur fyrir fólk og fyrirtæki. Þeir sem geta svo komið sér hjá slíkum reglum, í krafti síns auðs, nýta sér þennan leyndarhjúp. Ég kem betur að því í seinna andsvari.