fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Virðulegi forseti. Ég fór aðeins yfir samgöngur almennt í fyrri ræðu minni og sér í lagi ástand vegakerfisins. Það sem mig langar að impra á í seinni ræðu eru almenningssamgöngur og mikilvægi þeirra í framtíðinni.
Við þurfum að fara að líta á almenningssamgöngur sem grunnþjónustu og það grunnnet sem ríki og sveitarfélögin eiga að styðja og styrkja og þá ekki síst innanlandsflugið. Við sjáum að Isavia er tiltölulega sterkt og burðarmikið félag en þar sem við erum ekki með svipað fyrirkomulag og er t.d. í Noregi þá nýtist sá gífurlegi gróði sem fer í gegnum Isavia ekki í almenningssamgöngur, þ.e. í að gera flugið að raunhæfum kosti sem hluta almenningssamgangna. Það er eitthvað sem við þurfum virkilega að fara að huga að og þess vegna tek ég eindregið undir það sem stendur í áliti meiri hlutans um að staða innanlandsflugvalla á landsbyggðinni sé ekki góð. Það er mjög nauðsynlegt að leita nýrra leiða og ég held að við eigum að taka okkur til fyrirmyndar hvernig hlutirnir eru gerðir í Noregi.
Mig langar einnig að tala aðeins um styrkingu almenningssamgangna á stórhöfuðborgarsvæðinu. Við erum að stækka. Reykjavík hefur stækkað alveg gífurlega undanfarin 50 ár, undanfarin 100 ár má segja. Ef borgin heldur áfram að þenjast eins gífurlega út og hún hefur gert undanfarin 50 ár verðum við komin á Selfoss eftir önnur 50 ár. Það er alveg nauðsynleg að við förum að þétta byggð til þess að stuðla að minni notkun á einkabílnum. Þá er nauðsynlegt að styrkja almenningssamgöngur á Reykjavíkursvæðinu. Ég held að ríkið eigi að stuðla að því rétt eins og það beitir sér fyrir ákveðnum vegaframkvæmdum annars staðar. Meginþorri Íslendinga býr á stórhöfuðborgarsvæðinu og þar er ákveðin þjónusta veitt. Við þurfum að ákvörðun um að almenningssamgöngur séu framtíðin. Og almenningssamgöngur eru framtíðin út af loftslagsbreytingum. Hver veit hvernig þetta verður eftir 20, 30 ár, verður einkabíllinn til?
Almenningssamgöngur er náttúrlega miklu hagkvæmari kostur en til þess að þær séu hagkvæmar þarf fólk líka að nota þær. Til þess að fólk nýti sér almenningssamgöngur þurfa þær að vera tíðar og þær þurfa að vera þægilegar. Maður sér í löndum eins og Hollandi, Þýskalandi, Danmörku og jafnvel Noregi og Svíþjóð að þar er lagt mikið upp úr þægindum í almenningssamgöngum með til að mynda hljóðlátari vögnum, lestarvögnum og öðru í þeim dúr. Við þurfum að gera stórt átak í því. Ég held að ein einföld leið sem áhugavert væri að prófa væri að gefa ríkisstarfsmönnum strætókort og hvetja þá þannig til þess að nota almenningssamgöngur, til að sjá hvort það hefði áhrif á það hvernig ákvarðanir um almenningssamgöngur væru teknar í framtíðinni. Það væri mjög áhugavert því að það virðist vera sem þeir sem nýta sér almenningssamgöngur, alveg sama hvaða samgöngur er átt við, upplifi hlutina aðeins öðruvísi.
Almenningssamgöngur eru ekki bara strætó eða flugvellir eða flugvélar, sem við þurfum að taka inn í almenningssamgöngunetið, heldur einnig hjólreiðar og þær þarf að styrkja og hvetja til þess að fólk hjóli. Reykjavíkurborg má alveg eiga það að undanfarin ár hefur orðið gífurleg uppbygging þegar kemur að hjólreiðum, þótt við séum kannski 30–40 árum á eftir. Margir veigra sér við því að hjóla úti því að það er svo kalt á Íslandi og vont veður, en það verður bara að hafa það.
Við erum að tala um samgöngur og þá erum við ekki einungis að tala um stór mannvirki, við erum líka að tala um litlu hlutina sem gera það að verkum að fólk kemst á milli staða. Það sem mér þykir sorglegast er hversu seint og illa er rutt þegar það er snjóþungt. Það er illa sandað eða saltað, þó fer það eftir því hvað sveitarfélag við erum að tala um. En það er hægt að gera átak t.d. sem snýr að því að nærsamfélagið taki að sér að ryðja göturnar eða moka snjóinn þannig að fólk komist leiðar sinnar. Við erum ekki eina landið í heiminum sem býr við snjóþunga vetur og það er ekki eins og við þurfum að finna upp hjólið. Í Norður-Ameríku, þar sem er mjög snjóþungt, hefur fólk ákveðnar skyldur gagnvart nærsamfélaginu sem fela í sér að ryðja í kringum heimili sitt. Það sama á við um að raka lauf o.fl. af því að fólk getur dottið og handleggsbrotnað og ég veit ekki hvað. Mér er sérstaklega hugsað til eldri borgara sem eru kannski orðnir óstöðugir á fótunum. Mér er einnig hugsað til þeirra sem eru með fötlun og þurfa þess vegna að nota hjólastól. Oft er staðan einfaldlega sú að það eru heilu skaflarnir fyrir framan strætóskýlin og fólk kemst hvorki lönd né strönd og hefur kannski ekki dug í að reyna að fara á milli staða. Ef aðgengi er ekki gott ýtir það að sjálfsögðu undir það að fólk nýti sér einkabílinn. Þótt við séum í ákveðnu átaki þegar kemur að því að gera vistvænni einkabíla að raunverulegum valkosti þá held ég að við þurfum samtímis að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti. Ég held að hægt sé að koma almenningssamgöngum í almennilegt horf á mjög fjölbreyttan og auðveldan hátt. Við sjáum að eftir hrunið 2008 hefur því fólki fjölgað gífurlega sem nýtir sér almenningssamgöngur og þykir það allt í lagi.
Ég held að ríkið, stjórnvöld á hinu háa Alþingi, ríkisstjórnin, þurfi að koma með sveitarfélögum í þá vegferð að gera það að raunverulegum valmöguleika að notast aðeins við almenningssamgöngur. Það þýðir að við þurfum að leggja peninga í þær. Það kostar að búa til almennilegt samgöngukerfi, hvort sem það er með léttsporvögnum eða dýrari vögnum, sem eru samt þægilegri þannig að fólk nýti þá frekar. Svo væri einnig hægt að búa til einhverja hvata fyrir þá sem eru ólíklegastir til þess að nýta sér almenningssamgöngur. Almenningssamgöngur eiga að vera fyrir alla, ekki einungis unglinga eða þá sem ekki eru með bílpróf. Mér finnst oft litið niður á þá sem nota almenningssamgöngur og ég held að við lögum það bara með því að stíga sjálf inn í vagninn og taka þátt í því.
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra og læt hér með lokið umræðum mínum um samgönguáætlun.