145. löggjafarþing — 169. fundur,  12. okt. 2016.

störf þingsins.

[10:48]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti vill þakka góðar kveðjur og óskir til handa þingmönnum og Alþingi og þakka hv. þingmanni fyrir mjög gott samstarf um margra ára skeið, ekki síst nú á þessu kjörtímabili þar sem hv. þingmaður hefur verið formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ég sem þingforseti hef átt við hana eins og aðra þingflokksformenn afar gott samstarf. Það reynir auðvitað mjög mikið á alla þingflokksformenn, ekki síst þingflokksformenn stjórnarflokka, að reyna að leiða hluti saman. Hv. þingmaður hefur gert það með miklum sóma og sann jafnframt því að vera, eins og allir vita, baráttuglaður þingmaður þegar hún fer í mál sem hún hefur borið fyrir brjósti og þau eru allmörg.