145. löggjafarþing — 169. fundur,  12. okt. 2016.

kveðjuorð.

[11:11]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti þakkar hv. þingmanni kærlega fyrir hlý og góð orð í sinn garð. Forseti hefur átt mjög gott samstarf við hv. þingmann í forsætisnefnd þar sem hann hefur reynst bæði duglegur og ötull þingforseti. Þeir sem hafa tekið eftir því hafa örugglega veitt því athygli að hv. þingmaður hefur t.d. verið manna ötulastur og fúsastur til að sitja hér kvöldfundi og þeim mun lengur, þeim mun betra hefur hv. þingmanni fundist.

Forseti vill á þessum tímamótum þakka hv. þingmanni fyrir hans góðu störf í þágu þingsins innan vébanda forsætisnefndar og óskar honum og fjölskyldu hans velfarnaðar á komandi árum.