afgreiðsla mála fyrir þinglok.
Forseti. Það er kannski til marks um leikritið að þingmenn sem hér þykjast vera ósammála eru að skiptast á sama bindinu. Ég held að við ættum bara að láta þessu linna, vinda okkur í störfin og hætta að benda á aðra sem sökudólga í málum sem vitað er að eru á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Nú ætlum við að klára þingið og við ætlum að gera það með sóma. Hættum þessu rifrildi hér um eitthvað sem allir vita hvernig liggur í. Ég verð að hrósa forseta fyrir hvernig hann hefur reynt að taka á málum sem hafa komið frá ríkisstjórninni og hvernig hann hefur hlustað á minni hlutann og reynt að vera forseti alls þings. Mál er að linni, kæru félagar. Vindum okkur í störfin.