145. löggjafarþing — 169. fundur,  12. okt. 2016.

fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.

638. mál
[11:48]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil, rétt eins og aðrir, fagna því að við skulum vera að afgreiða frá Alþingi samgönguáætlun, þó að það sé sannarlega vonum seinna. Hér er um afar mikilvægt mál að ræða og raunar var tillagan sem þingið fékk ekki mjög sókndjörf, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Málaflokkurinn hefur í raun liðið fyrir ákveðið metnaðarleysi allt kjörtímabilið. En það er góður svipur á því að við hér á Alþingi skulum sammælast um niðurstöðuna. Ég vil sérstaklega þakka fyrir góða vinnu í nefndinni, að við setjum sameiginlega umtalsvert meira fé í viðhald. Það skiptir miklu máli. Ég vil sérstaklega þakka nefndinni fyrir það og meiri hlutanum fyrir að fallast á tillögur minni hlutans varðandi Skógarstrandarveg, Látrabjarg og ekki síst að setja Axarveg á dagskrá.