145. löggjafarþing — 169. fundur,  12. okt. 2016.

fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.

638. mál
[11:50]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er náttúrlega gleðiefni að við séum hér loksins að afgreiða samgönguáætlun fyrir 2015–2018. Það tók smá tíma fyrir hana að koma inn í þingið, en það tókst. Mig langar til að þakka fyrir þá vinnu sem fram fór í umhverfis- og samgöngunefnd. Ég vil sérstaklega fagna því að hlustað hafi verið á minni hlutann varðandi það að setja meira í endurbætur og viðhald á vegum, og sömuleiðis að vegurinn að Látrabjargi verði lagaður, enda er þar um stórhættulegan veg að ræða. Það þarf ekki mikið til að slys verði þar. Vegakerfið er grundvöllur ferðamannastraumsins á Íslandi. Við þurfum að sjá til þess að það verði öruggt. Við gerum það bara með því að bæta enn betur í þennan málaflokk.