145. löggjafarþing — 169. fundur,  12. okt. 2016.

almannatryggingar o.fl.

857. mál
[15:36]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga einmitt ágætt samstarf og upplýsandi í þeirri nefnd sem Pétur heitinn Blöndal stýrði, þ.e. hv. þingmaður og ég, þar sem ég var fulltrúi fjármálaráðuneytisins.

Vandinn er auðvitað þessi. Það var einlægur vilji ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna að tryggja öryrkjum sem lakast standa þær kjarabætur sem við erum að tryggja eldri borgurum. Vandinn sem menn stóðu frammi fyrir var að vegna þess að kerfisbreytingarnar höfðu ekki náð fram að ganga gagnvart öryrkjum var ekki um marga kosti að ræða. Við getum deilt um það hvort hefði átt að gera þetta með einhverjum öðrum hætti. Ég er algjörlega sammála því að sérstaka framfærsluuppbótin er auðvitað fremur nöturlegur bótaflokkur, skerðist króna á móti krónu. Nú erum við búin að afnema það kerfi gagnvart eldri borgurum, en við eigum eftir að stíga skrefið gagnvart hinum hópnum. Vonandi tekst það tiltölulega fljótt vegna þess að ég er algjörlega sannfærður um að ef vinnubrögð hv. þm. Steinunnar Þóru Árnadóttur og annarra verða til fyrirmyndar í þeirri vinnu sem þarf að fara fram mun það mál leysast með mjög farsælum hætti.