145. löggjafarþing — 169. fundur,  12. okt. 2016.

almannatryggingar o.fl.

857. mál
[16:16]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að mér verður illt í réttlætiskenndinni minni þegar við ræðum almannatryggingar. Það er alveg sama hvort við tölum um öryrkja eða ellilífeyrisþega eða hvað það heitir allt saman. Það sem ég á rosalega erfitt með er viðhorfið sem er svo ríkjandi, að allt eigi bara að vera við framfærsluviðmið. Við sjáum sama viðhorf í LÍN-frumvarpinu, þar á fólk að vera við framfærsluviðmið, telja allar bætur upp í framfærsluviðmið. Í raun og veru endurspeglar framfærsluviðmið ekki einu sinni lágmarkslaun.

Það sem ég á sérstaklega erfitt með eru allar tekjuskerðingarnar. Í frumvarpinu er skerðingarhlutfallið aukið. Á sama tíma er hækkað töluvert meira í einn bótaflokk, eins og ég skil það þótt ég sé enginn sérfræðingur í þessu. Það þarf að sýna smá þolinmæði ef ég fer ekki 100% með rétt mál.

Skerðingar eru alltaf svolítið erfiðar þar sem fólk er oft að reyna að safna sér fyrir einhverju eða eiga fyrir utanlandsferð eða hvað það er. Þetta er nú fólk þrátt fyrir allt. Þá er ég ekki að segja það sem sumir hafa bent á: En hvað með alla þessa milljarða- og milljónamæringa? Eiga þeir þá líka að fá aðgengi að almannatryggingakerfinu? Við erum ekkert endilega að tala um það. Við erum að tala um venjulegt fólk sem er að reyna að lifa venjulegu lífi frá degi til dags. Eins og ég sagði á ég rosalega erfitt með þetta frumvarp eins og stendur. Markmið þess er einföldun bótakerfisins en ég sé ekki alveg hvar einföldunin á sér stað. Jú, það er náttúrlega einhver sameining bótaflokka, en ég skil ekki hvað það bætir í raun. Stundum er einföldunin ákveðin flækja og það virðist vera komin hingað inn ákveðin flækja með því að auka skerðingarhlutfallið.

Ég verð að viðurkenna að ég er mjög hugsi yfir því sem hefur komið fram hjá öðrum hv. þingmönnum varðandi þessa hækkun, þ.e. hækkun sem er upp á 13,4% í heimilisuppbótina, hvernig það mun síðan koma út ef við tökum tillit til tekjuskerðinga, þar sem er verið að auka skerðingu á sama tíma. Ég sé ekki alveg hvernig þetta mun enda. Mér finnst þetta svolítill leikur að tölum. Ég skil ekki af hverju það er ekki hægt að borga fólki sómasamleg laun fyrir að vera til. Ég skil ekki af hverju fólk sem hefur stritað við að skapa sér líf alla ævi fær ekki það sem samsvarar lágmarkslaunum á Íslandi. Ég á mjög erfitt með að skilja þá hugsun að þetta eigi allt saman að vera við framfærslumörk, sem eru einhvern veginn búin til og taka ekki endilega tillit til fjölbreytilegra aðstæðna fólks, svo sem nauðsynjar á töku lyfja eða annars slíks.

Einnig skil ég ekki þá hugsun að það sé í lagi að þeir sem eru í sambúð séu með umtalsvert lægri mánaðargreiðslur. Þá þætti mér eðlilegast ef þingmenn í sambúð fengju 50 þús. kr. minna í laun á mánuði, til að gæta samræmis innan kerfisins. Ég sting upp á því. Ég á erfitt með að skilja þá hugsun sem liggur þarna að baki. Ég skil að það er dýrara að búa einn en að sama skapi finnst mér 240 þús. kr. ekkert til að hrópa húrra fyrir miðað við verðlagið í dag, því miður.

Ég skil ekki af hverju er verið að hækka þann bótaflokk sem skerðist hvað mest og hver tilgangurinn er. Hvernig mun stóra myndin líta út?

Ég fagna því náttúrlega að komið sé með hækkanir inn í kerfið í heild. Ég get því ekki sagt að ég sé sérstaklega á móti þessu. En ég set í vanþekkingu minni spurningarmerki við ákveðna hugsun sem ég hef rekist á annars staðar í kerfinu og það er sú gamaldags ölmusuhugsun að fólk sem þiggi eitthvað frá samfélaginu sé á sveit og það sé allt í lagi að það lifi við hungurmörk. Ég er rosalega ósammála því. Mér finnst það skína svolítið í gegn þegar við lesum svona frumvörp, því miður. Ég get ekki sagt að ég skilji þetta mál til hlítar, enda er almannatryggingakerfið geysilega flókið, en allar svona umbætur ber að rannsaka vel. Þó að nefndinni hafi verið falið það góða og mikla verkefni að fara yfir þetta mál sat ég ekki í hv. nefnd, hvorki í Pétursnefndinni svokallaðri né hv. velferðarnefnd. Ég verð bara að segja að ég set spurningarmerki við útfærsluna á þessu þótt ég fagni því að komið sé með meira fjármagn inn í þessa bótaflokka. Ég set bæði spurningarmerki við það af hverju hjón í sambúð eigi að fá minna á mánuði og af hverju verið er að púsla þessu þannig saman að sá sem býr einn fái 280 þús. kr. Af hverju fá ekki allir 280 þús. kr., sem hlýtur að vera markmiðið að koma öllum í?

Ég ætla ekki að hafa mál mitt mikið lengra. Þetta eru almennar vangaveltur. Ég set ákveðna fyrirvara við þessa útfærslu þótt ég fagni að sjálfsögðu markmiðinu. Ég verð að segja eins og er að það er margt hérna sem ég skil ekki. Ég vona að aðrir hv. þingmenn geti útskýrt það betur fyrir mér.