almannatryggingar o.fl.
Herra forseti. Frumvarp til laga um almannatryggingar kom hér inn í september. Það verður ekki sagt að mikill tími hafi gefist til að fara yfir málið í þinginu. Við í stjórnarandstöðunni höfum hins vegar reynt að greiða fyrir málinu, ekki síst fulltrúar þessara flokka í velferðarnefnd, enda viljum við standa með kjarabótum fyrir öryrkja og aldraða. Það sem eftir stendur er að við höfum stutt allar þær kjarabætur sem hér hafa verið lagðar til sem og þær kerfisbreytingar sem varða aldraða. Fyrir liggur hins vegar að samtök öryrkja eru ekki sátt við þær breytingar sem eru lagðar til í þessu máli og teljum við að betur færi á því að gefa þessu meiri tíma til að ná meiri sátt um málið. Stjórnarmeirihlutinn hefur ítrekað fellt tillögur okkar í minni hlutanum, nú síðast í gær, þar sem við lögðum til að okkar mati réttlátari leiðir til að ná fram kjarabótum fyrir þessa hópa. En í ljósi þess að einhverjar kjarabætur eru betri en engar höfum við stutt þær tillögur en munum sitja hjá við málið í heild.