145. löggjafarþing — 171. fundur,  13. okt. 2016.

almannatryggingar o.fl.

857. mál
[11:42]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Mér þykir sorglegt að sjá hvern stjórnarandstöðuþingmanninn á fætur öðrum koma hér upp og telja sig ekki geta greitt atkvæði með þessu frumvarpi út af einhverri aðferðafræði. Látið er liggja að því að þeir verði ekki á rauða takkanum, greiði ekki gegn því, vegna þess að þetta eru einhverjar kjarabætur, að þær séu betri en engar. Þetta eru gífurlega miklar kjarabætur og eiga sér enga hliðstæðu, hafa aldrei átt sér hliðstæðu. (Gripið fram í: Ákvörðunum …) Svo koma menn hér og segja: Við getum ekki greitt atkvæði með þessu. Mér þykir mjög sorglegt að heyra það. Ég hefði ekki trúað því að menn gætu ekki staðið saman að þessu með þeim hætti sem hér er gert. (Gripið fram í.) Það er ótrúlegt, og að koma svo með einhverjar fáránlegar yfirborðstillögur af því að það eru að koma kosningar sem enginn innstæða er fyrir og menn hafa aldrei sýnt nokkurn áhuga áður á slíku yfir … (SII: Þið hafið fellt það fimm sinnum.) Það er stjórnarandstöðunni til skammar.