145. löggjafarþing — 172. fundur,  13. okt. 2016.

kveðjuorð.

[12:30]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég verð að viðurkenna það hér og nú að ég er stödd hér einfaldlega vegna mikils hópþrýstings. Ég hafði ekki hugsað mér að kveðja Alþingi sérstaklega með þessum hætti, ég stend í sömu sporum og þeir sem talað hafa hér áður. En ég stóðst ekki freistinguna fyrst svo margir hafa notað þetta tækifæri. Ég vil ljúka þingferli mínum í einlægri þökk. Ég þakka kærlega fyrir alla aðstoð frá starfsfólki Alþingis. Ég held að afskaplega fáir geri sér grein fyrir því hvers lags eðalfólk er hér að störfum. Og með fullri virðingu fyrir okkur sem sitjum í þessum sal held ég að starfsfólk Alþingis sé upp til hópa einn sá besti hópur af fólki sem valist hefur inn á einn vinnustað. Ég vil gera það að lokaorðum mínum úr þessum ræðustól að þakka kærlega fyrir samstarfið. Takk fyrir mig.