145. löggjafarþing — 172. fundur,  13. okt. 2016.

kveðjuorð.

[12:37]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti þakkar kærlega þær kveðjur sem honum hafa borist og Alþingi frá þeim þingmönnum sem hér hafa tekið til máls og eru nú að ljúka þingferli sínum. Forseti vill segja að undantekningarlaust er eftirsjá að öllum þessum þingmönnum, þingmennirnir hafa auðvitað sett sinn svip með ýmsum hætti á störf þingsins en allir hafa þeir lagt sig fram eins og við viljum öll gera.

Forseti vill á þessum tímamótum færa þeim miklar þakkir fyrir þeirra störf í þágu þings og þjóðar og árna þeim og fjölskyldum þeirra allra heilla í komandi framtíð.