146. löggjafarþing — þingsetningarfundur

forseti Íslands setur þingið.

[14:05]
Horfa

Forseti Íslands (Guðni Th. Jóhannesson):

Hinn 30. nóvember sl. var gefið út svofellt bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 6. desember 2016.

Um leið og ég birti þetta er öllum sem setu eiga á Alþingi boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni er hefst kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 30. nóvember 2016.

Guðni Th. Jóhannesson.

 

_____________________

Sigurður Ingi Jóhannsson.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 6. desember 2016.“

 

Samkvæmt bréfi því sem ég hef nú lesið lýsi ég yfir að Alþingi Íslendinga er sett.

Árið 1845 var Alþingi endurreist, nær hálfri öld eftir að þinghald lagðist af á Þingvöllum. Carl Emil Bardenfleth, stiftamtmaður og konungsfulltrúi, steig fyrstur í ræðustól og hóf mál sitt með þessum orðum:

„Næsta hátíðleg er þessi stund, háttvirtu landsmenn, nú þegar að því er komið að vér skulum setja Alþing. Vart mun það orð finnast, er hér á Íslandi bæði rifji upp fyrir mönnum svo margar endurminningar fornaldarinnar, og glæði svo margar vonir hins komanda tíma, sem þetta eina orð: Alþing.“

Ekki var hið endurreista þing, sem kom saman í Reykjavík, löggjafarþing eða lýðræðisleg samkoma í skilningi okkar daga. Það var skipað konungkjörnum fulltrúum og körlum úr yfirstétt sem eignamenn höfðu kosið. Þingið sátu konferensráð, jústiziarius og assessor, prestar, prófastar og sýslumenn. Leiguliðar, vermenn og kotbændur voru hvergi nærri, hvað þá konur.

Nú er öldin önnur. Sumt hefur þó staðið óhreyft í tímans rás. Enn er þessi stund hátíðleg og enn lítum við Íslendingar með virðingu til Alþingis á þjóðveldisöld. Ekki var lýðræði og jöfnuði þar fyrir að fara í okkar merkingu. En þaðan höfum við þó þann vísdóm að ef við slítum í sundur lögin, slítum við í sundur friðinn, og sömuleiðis þau sannindi að málamiðlanir eru nauðsynlegar á Alþingi. „En nú þykir mér það ráð,“ mun Þorgeir Ljósvetningagoði hafa sagt þegar kristni var lögtekin, „að vér látum og eigi þá ráða er mest vilja í gegn gangast, og miðlum svo mál á milli þeirra, að hvorirtveggju hafi nakkvað síns máls“.

Stundum var friðurinn úti. Um áratug eftir kristnitökuna var barist á þingi, helgi þess rofin. Það voru eftirköst brennunnar á Bergþórshvoli. Nokkrir voru vegnir, segir Njálssaga; spjót komu í menn miðja eða gengu í gegnum báða fætur. Þar kom að Hallur af Síðu leitaði sátta. „Hér hafa orðir harðir atburðir í mannaláti og málasóknum,“ mælti hann: „Mun eg enn sýna það, er eg er lítilmenni.“ Átökum linnti. Að máli Halls var gerður „mikill rómur og góður og lofuðu allir mjög hans góðgirnd.“

Sögurnar lifa, boðskapurinn sömuleiðis. Þing er nú sett við óvenjulegar aðstæður. Rúmur mánuður er liðinn frá kosningum sem leiddu til þess að ríkisstjórn missti meiri hluta sinn á Alþingi og baðst lausnar. Ekki hefur tekist að mynda nýja stjórn. Horfa þarf áratugi aftur í tímann í leit að hliðstæðum. Árið 1942, þegar Sveinn Björnsson var ríkisstjóri, var kosið til þings í október eins og nú. Illa gekk að ná sátt um stjórnarsamstarf. Því réð málefnalegur ágreiningur flokkanna en líka viðsjár milli leiðtoga þeirra, jafnvel metingur einstakra manna.

Sveinn mótaði þá venju að forseti afhenti þeim stjórnmálaleiðtoga umboð til stjórnarmyndunar sem hann teldi líklegastan til að hafa erindi sem erfiði. Mistækist þeim fyrsta reyndi annar og síðan gengi umboðið manna á milli ef þurfa þætti uns stjórn yrði til.

Í dag er þess minnst að rétt öld er liðin frá fæðingu Kristjáns Eldjárns, þriðja forseta lýðveldisins. Árin 1978–1980 stóð hann í ströngu. Segja má að þá hafi verið nær samfelld stjórnarkreppa. Sömu aðstæður voru uppi og áður var getið. Auk þess bættist annar vandi við. Í tíð Kristjáns virtist sumum stjórnmálaleiðtogum, sem stóðu í stjórnarmyndunarviðræðum, ósárt um að enginn árangur næðist því að þá kæmi röðin um síðir að þeim sjálfum að leiða þær. Heiðurinn yrði svo þeirra ef vel tækist til.

Kristján Eldjárn hafði að leiðarljósi við stjórnarmyndanir að enginn flokkur yrði útilokaður. Fyrstur forseta fól hann formanni þess flokks, sem lengst stóð til vinstri í stjórnmálum, formlegt umboð til stjórnarmyndunar. Sætti hann þá ámæli en ég hygg að dómur sögunnar sé að þar hafi Kristján gert rétt. Þegar enginn virðist öðrum líklegri til að geta myndað ríkisstjórn hljóta fleiri sjónarmið að koma til álita. Á Alþingi Íslendinga eiga allir þingmenn og þingflokkar að vera jafn réttháir.

Ekki er örgrannt um að almenningi hafi þótt til vansa hve illa þinginu gekk að mynda ríkisstjórnir síðustu ár Kristjáns Eldjárns á forsetastóli. Áfram treystu kjósendur þó Alþingi. Sú er því miður ekki raunin um okkar daga. Fleira hrundi en bankar haustið 2008. Fólki fannst þingið hafa brugðist. Þótt margt hafi breyst til batnaðar er ljóst að ekki hefur skapast á ný það traust sem þarf að ríkja milli þings og þjóðar. Íslendingar dæma alþingismenn af verkum þeirra, framkomu og starfsháttum. Vinna þingmanna fer að miklu leyti fram utan þingfunda, í nefndum, með samtölum hér og þar, með kjósendum heima í kjördæmum. Á hinn bóginn beinist kastljós fjölmiðla einkum að því sem gerist í þessum sal. Og hér er úrbóta þörf. Um það eru margir sammála, þeirra á meðal gamalreyndir þingmenn, hertir í áralangri orrahríð. Deiluefni þurfa ítarlega umræðu en málþóf vekur furðu fólks og andúð. Meiri hluti þarf að hafa úrslitavald en þeir sem eru í minni hluta verða að geta haft áhrif á gang mála.

Nýtt þing hefur verið kjörið. Það eru orð að sönnu. Aldrei í sögu lýðveldisins hafa eins margir nýliðar sest á Alþingi, rúmur helmingur þingmanna. Aldrei hefur meðalaldur þingmanna verið lægri en nú, rúm 46 ár. Aldrei hefur þingreynsla þingmanna verið eins lítil, að meðaltali innan við fjögur ár. Aldrei hafa eins margar konur verið í þingheimi, nær helmingur, eða 47,6%. Og líklega hefur bakgrunnur þingmanna aldrei verið eins fjölbreyttur.

Endurheimt trausts er í senn möguleg og brýn. Nú er lag að auka vegsemd þingsins og virðingu — takast vissulega á í þingsal, deila hart ef svo ber undir, en bæta vinnubrögðin, viðmótið, reglur og þingsköp. Um leið skulum við halda í heiðri góðar hefðir og venjur, læra af sögunni, hafa víti til varnaðar. Það gerðu menn til forna. Í handriti frá því um 1500 má finna þingsetningarformála þar sem mælt er fyrir griðum á Alþingi, vísast af biturri reynslu:

„Ég […] lýsi fyrir öllum yður hér komandi mönnum slíkum griðum sem vorir feður hafa sett oss til frelsis og náða og vor lögbók útvísar, að allir þeir menn sem í Öxarárför eruð, þá skulu þeir í griðum vera hver við annan þar til er þeir koma heim til síns heimilis, en ef einhver gengur á þessi grið og vegur mann eður veitir lemstrarsár þá hefur hann fyrirgjört fé og friði, landi og lausum eyri og komi aldrei í land aftur.“

Ég óska þingmönnum öllum velfarnaðar og vona að störf þingsins í þágu þjóðar verði gifturík, að þeir miðli málum þannig að allir „hafi nakkvað síns máls“ og glæði um leið „vonir hins komanda tíma“.

Að svo mæltu bið ég alþingismenn að minnast fósturjarðarinnar með því að rísa úr sætum.

[Þingmenn risu úr sætum og forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

[Strengjakvartett flutti lagið Hver á sér fegra föðurland.]