146. löggjafarþing — 1. fundur,  6. des. 2016.

tilkynning um stjórnir þingflokka.

[16:22]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Eftirfarandi tilkynningar hafa borist um stjórnir þingflokka:

Þingflokkur Pírata: Birgitta Jónsdóttir formaður, Ásta Guðrún Helgadóttir varaformaður og Einar Brynjólfsson ritari.

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins: Guðlaugur Þór Þórðarson formaður, Brynjar Níelsson varaformaður og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ritari.

Þingflokkur Samfylkingarinnar: Oddný G. Harðardóttir formaður og Guðjón S. Brjánsson varaformaður.

Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs: Svandís Svavarsdóttir formaður, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir varaformaður og Lilja Rafney Magnúsdóttir ritari.

Þingflokkur Bjartrar framtíðar: Björt Ólafsdóttir formaður.

Þingflokkur Framsóknarflokksins: Þórunn Egilsdóttir formaður, Silja Dögg Gunnarsdóttir varaformaður og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ritari.

Þingflokkur Viðreisnar: Hanna Katrín Friðriksson formaður, Jón Steindór Valdimarsson varaformaður og Pawel Bartoszek ritari.