ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2017.
Virðulegi forseti. Nei, þetta er ekki kækur. Á árinu 2016 erum við t.d. ekki með neinar hækkanir á þessum sömu gjöldum, þ.e. núll hækkun, sem þýðir að að raungildi hafa þessir skattstofnar verið að tapa verðgildi séð frá sjónarhóli ríkissjóðs. Ef við horfum nokkur ár aftur í tímann gerðum við samkomulag við aðila vinnumarkaðarins um að hækka aldrei þessa skatta umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans. Við höfum staðið við það á þessu kjörtímabili. Nú er því viðmiðunartímabili að ljúka og þessari hækkun er fyrst og fremst ætlað að viðhalda þessum tekjustofnum ríkisins, svona að verðlagi. Það er auðvitað galli við það að vera með krónutölugjöld og krónutöluskatta vegna þess að í verðbólgu er augljóst að slíkir skattstofnar rýrna stöðugt, þess vegna er þetta árlegt umræðuefni á Alþingi.
Ég er persónulega þeirrar skoðunar að skattkerfið megi gjarnan vera þannig að við leyfum fólki að halda sem allra mestu eftir af sjálfsaflafé en séum síðan að öðru leyti með skattkerfi sem byggir á því að neysluskattarnir séu þeim mun hærri. Hérna undir, í þessum krónutölugjöldum og sköttum, erum við sérstaklega með það sem oft eru kallaðir syndaskattar, tóbak, áfengi, eldsneyti og slíka hluti sem hafa ýmis slæm áhrif á lýðheilsu og umhverfismál. Ég styð skattstefnu sem byggir á því að slíkir skattar séu tiltölulega háir að því gefnu að menn séu ekki líka með alla tekjuskattana í botni.