ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2017.
Virðulegi forseti.
(Forseti (ÞórE): Forseti biður þingmanninn um að hinkra meðan hann er kynntur í pontu.)
Virðulegi forseti. Afsakaðu þetta. Til að bregðast við því fyrsta sem hv. þingmaður sagði held ég að það væri bráðnauðsynlegt að Alþingi tæki ekki bara einu sinni heldur oft og með reglulegum hætti umræðu um grundvallarsýn fólks á samfélagið og hvernig það telji að það eigi að byggjast upp og hvernig eigi að fjármagna það. Hv. þm. Pawel Bartoszek kom ágætlega inn á skoðun sína á því. Þar erum við kannski, jú, við gætum farið saman í ferðalag en við myndum ekki pakka eins ofan í töskurnar, svo ég notist við hans líkingamál. Ég tel að við eigum einmitt að nýta okkur skattkerfið til að jafna aðstöðumun landsmanna. Öll erum við jú fædd með ákveðið tilkall til auðæfa landsins. Þar er ég sammála hv. þm. Pawel Bartoszek, þar getum við náð töluvert miklu meiru úr auðlindum okkar. Einstaka flokka kann svo að greina á með hvaða hætti það er gert. Það er auðvitað umræða sem hægt er að taka.
Ég er líka sammála hv. þingkonu Birgittu Jónsdóttur um að auðvitað þurfa menn að kunna sér hóf og fara varlega. Það á ekki að stefna atvinnugreinum í voða með því að setja álögur of skarpt á þær. Ég held að það sé eitthvað sem allir hafa skilning á. En við þurfum samt sem áður að fara það rösklega í verkið að hér grotni ekki endanlega niður grunnþjónusta í heilbrigðiskerfinu, í menntamálum og jafnvel vegirnir.