146. löggjafarþing — 3. fundur,  8. des. 2016.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2017.

2. mál
[13:46]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur enn og aftur fyrir mjög ítarlegt andsvar. Ég mun reyna að gera mitt besta. Hv. þingmaður bað um skýrara svar varðandi tekjuöflun og varðandi Dýrafjarðargöng, þá treysti ég því að allir hv. þingmenn í hv. fjárlaganefnd og hv. efnahags- og viðskiptanefnd muni gera sitt besta til þess að finna fjármagn og leiðir til þess að vinna að þeim verkefnum sem fram undan eru, sama hvort það eru samgöngumál, heilbrigðismál eða annað.