kjararáð.
Frú forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um það að þetta frumvarp er líklega komið fram, eitt af mjög fáum frumvörpum sem eru nú lögð fram, vegna þess að úrskurður kjararáðs veldur hættu á upplausn á vinnumarkaði í kjölfarið. Það er það sem Samtök atvinnulífsins segja, það sem heildarsamtök launþega segja líka. Í kjölfar hækkunar launa þingmanna og ráðherra í kringum kosningarnar, á kosningadegi var ákvörðunin tekin, hafa kennarar í einum skóla á höfuðborgarsvæðinu sagt störfum sínum lausum.
Samkvæmt þeim aðilum, heildarsamtökum á vinnumarkaði, er hætta á upplausn á vinnumarkaði vegna úrskurðar kjararáðs. Ég trúi ekki öðru en að við stöndum hérna í dag að ræða þetta frumvarp út af þessum úrskurði. Það þurfi að gera eitthvað núna til að aftengja þá sprengju sem ákvörðun kjararáðs um að hækka laun þingmanna og ráðherra og fleiri er. Þá er spurningin og ég spyr hæstv. ráðherra: Hvað í þessu frumvarpi gerir það? Í gildandi lögum er sagt að kjararáð verði að taka ákvarðanir sínar byggðar á innra samræmi, í samræmi við aðrar ákvarðanir sem eru teknar um aðra sem ákveðin eru laun fyrir, í ytra samræmi við sambærilegar starfsstéttir, en ákvarðanir þess megi ekki fara út fyrir þann ramma að þær skapi hættu á að setja kjarasamninga þorra launafólks í hættu. Þetta segir í lögunum.
Þetta hverfur allt saman með þessu frumvarpi, þessir ofboðslega sterku varnaglar, að það megi ekki verða hætta á upplausn á vinnumarkaði vegna þess að það valdi efnahagsóstöðugleika. Þetta hverfur með frumvarpinu. Þessir varnaglar eru ekki nógu sterkir. Hvað er það í frumvarpinu, umfram það sem ráðherra nefndi, sem er einhvers konar (Forseti hringir.) aukið gagnsæi, sem er svar við því ástandi sem hefur skapast núna vegna ákvörðunar kjararáðs?