146. löggjafarþing — 5. fundur,  15. des. 2016.

fjáraukalög 2016.

10. mál
[11:49]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og ég vék að þá er hér fyrst og fremst verið að horfa til þess að ekki verði tekjuhrun hjá sauðfjárbændum. Ég get tekið undir með hv. þingmanni þegar því er haldið á lofti hversu mikil gæði eru í framleiðslu á Íslandi á þessari vöru. Það má alveg gefa sér það, eins og eftirspurn eftir hollum og heilnæmum matvörum er að þróast í heiminum, að það hljóti að vera tækifæri annars staðar fyrir það. En það eru margir aðrir flóknir samverkandi þættir sem hafa hér áhrif. Það er samkeppni vegna annars innflutnings, annarrar framleiðslu, það kostar mikið markaðsátak að vinna nýja markaði. Spurningunni um það hvernig við stillum best af framleiðslumagnið í sauðfjárrækt get ég því miður ekki svarað héðan úr ræðustól í dag. En auðvitað hlýtur það ávallt að vera áleitin spurning þegar menn sitja uppi með umframframleiðslu hvort þar sé ekki eitthvað sem þurfi að horfa til.

Að þessu sinni er framlagið fyrst og fremst til komið vegna þess að u.þ.b. 600 tonn sem áður höfðu verið ætluð í samninginn við Norðmenn fara ekki þangað þar sem þeir hætta við kaup á vörunni og það eru 600 af þeim 800–1.000 tonnum sem eru hér undir.

Ég tek undir með hv. þingmanni þegar bent er á að þetta eru háar fjárhæðir og þær koma til viðbótar við önnur framlög sem við höfum hugsað til markaðsátaka fyrir íslenskar afurðir. En þó er munurinn sá á þessu tiltekna framlagi að það er hugsað í skammtímaverkefni meðan í búvörusamningnum er horft til mun lengri tíma.