146. löggjafarþing — 7. fundur,  20. des. 2016.

undirritun drengskaparheits.

[13:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Í gær tók sæti Gunnar I. Guðmundsson, 1. varamaður á lista Pírata í Norðvesturkjördæmi, á Alþingi. Kjörbréf Gunnars I. Guðmundssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

Ég vil biðja skrifstofustjóra Alþingis um að færa hv. þingmanni heitstafinn til undirritunar.

[Gunnar I. Guðmundsson, 5. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]