146. löggjafarþing — 8. fundur,  20. des. 2016.

kjararáð.

7. mál
[16:08]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Herra forseti. Við í Vinstri grænum tökum heils hugar undir þau sjónarmið að skipun kjararáðs þurfi að byggja á breidd bakgrunnsráðsliða og þurfi þannig að endurspegla þá flóru sem er undir ráðinu, en við teljum að þau markmið náist ekki með þeim breytingum sem hér eru lagðar til, að tillögur í lið a og b séu of þröngar, og við munum því ekki styðja þær.