146. löggjafarþing — 11. fundur,  22. des. 2016.

útlendingar.

29. mál
[11:45]
Horfa

Flm. (Þórunn Egilsdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir fyrirspurnina. Ég hef enga ástæðu til að ætla að Útlendingastofnun vinni ekki málið af fagmennsku og festu eða efast um að allir hljóti réttmæta málsmeðferð. Við erum að koma þessum málaflokki í þann farveg að við getum verið skilvirkari og unnið markvissar að þessum málum og hjálpað fólki sem þarf raunverulega á hjálp að halda.