146. löggjafarþing — 12. fundur,  22. des. 2016.

fjárlög 2017.

1. mál
[13:55]
Horfa

Frsm. 4. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þetta. Ég held að við séum reynslunni ríkari. Auðvitað eru ekki allir glaðir og sú sem hér stendur er ekki ánægð með niðurstöðuna eða tilbúin til að segja að þetta sé nóg og ekki þurfi að gera betur. Það er sannarlega ekki svo. Ég held að okkur líði öllum þannig. En okkur tókst að lenda málinu og það er svolítið afrek.