146. löggjafarþing — 13. fundur, 22. des. 2016.
fjáraukalög 2016.
10. mál
Virðulegi forseti. Við greiðum atkvæði um frumvarp til fjáraukalaga sem ber þess merki að hér hafa orðið mikil umskipti í ríkisfjármálum. Frumvarpið endurspeglar þá stöðu að nú hafa verið færðar inn í bækur ríkisins stöðugleikaframlög sem eru allmikil tíðindi. Frá og með þessari stundu búumst við við því að ríkisreksturinn, ríkisbókhaldið og ríkisfjárhagurinn sé kominn í stöðugra umhverfi. Það er okkar að halda vel á spöðum þegar fram líða stundir í þeim efnum.