146. löggjafarþing — 13. fundur,  22. des. 2016.

fjáraukalög 2016.

10. mál
[20:04]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Hér greiðum við atkvæði um fjáraukalagafrumvarp 2016. Við Píratar viljum þakka gott samstarf í fjárlaganefnd og greiðum að sjálfsögðu atkvæði með breytingartillögu fjárlaganefndar saman og sitjum að öðru leyti hjá við afgreiðslu frumvarpsins. Að öðru leyti bara það sama og hv. þm. Bjarkey Olsen sagði: Þakka þér kærlega fyrir.