146. löggjafarþing — 13. fundur,  22. des. 2016.

veiting ríkisborgararéttar.

28. mál
[21:35]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Það er alltaf stór stund fyrir þá einstaklinga sem um ræðir. Ég veit það vegna þess að ég fékk ásamt mömmu minni ríkisborgararétt með þessum hætti fyrir u.þ.b. 19 og hálfu ári. Það er einn þingmaður hér í salnum sem tók þátt í þeim gjörningi og ég þakka hæstv. forseta [Hlátur í þingsal.] kærlega fyrir það. Honum er það eflaust í fersku minni og ég vona að hann sjái ekki allt of mikið eftir þeirri ákvörðun sinni. [Hlátur í þingsal.]

Að öðru leyti óska ég þeim sem um ræðir aftur innilega til hamingju.