146. löggjafarþing — 14. fundur,  22. des. 2016.

fjáraukalög 2016.

10. mál
[22:51]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Haraldur Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við 3. umr. fjáraukalaga. Ég boðaði það í framsögu hér fyrr í dag að mögulega þyrftum við að gera örlitla endurskoðun á einni tillögu sem þar var flutt og fylla hana betri gögnum en hún er ósköp einföld. Hún hljóðar upp á að hækka aukafjárveitingu til Vegagerðarinnar vegna óvæntra framkvæmda við dýpkun hafnar á Siglufirði. Sú tillaga liggur hér fyrir.