146. löggjafarþing — 16. fundur,  24. jan. 2017.

kosning í fastanefndir skv. 13. gr. þingskapa.

[13:55]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þetta er það sem maður óttaðist að myndi gerast. Í lögum um þingsköp sem eru leikreglur þingsins er nefnilega sagt til um það að fyrst skuli reynt að leita samninga og byggja þá á þingstyrk. Eins og hv. þm. Björn Leví nefndi áðan er það þingstyrkur sem er í rauninni ekki styrkur sem kom frá kjósendum. Kjósendur eru að minni hluta á bak við þá ríkisstjórn sem er að ákveða þessa hluti í þingsal. Minni hluti landsmanna er á bak við þennan stjórnarmeirihluta og þennan þingmeirihluta.

Hvað var talað um rétt eftir kosningar? Reynum að ná sátt um málin. Það var það sem kom frá ríkisstjórninni, en hvað gerðist síðan strax? Sjálfstæðisflokkurinn gefur það út að hann vilji fá fimm nefndaformannasæti, fimm af átta. Hvað er þá eftir fyrir hina? Maður hugsaði um hvernig þetta gæti farið. Maður vissi að í þingsköpum er talað um að menn skuli reyna að ná sáttum, reyna að ná sáttum um nefndasæti og finna leiðir til þess. Ef það átti að vera sátt um þetta eða samstarfsvilji hefði það verið tónninn. En niðurstaðan varð það sem kemur fram seinna í 14. gr., það er hægt að beita hnefavaldi. Þá getur stjórnarmeirihlutinn, þó að hann hafi ekki meiri hluta landsmanna á bak við sig, ákveðið að hann vilji hafa þetta svona og það er hnefavaldið sem á að beita.