146. löggjafarþing — 18. fundur,  25. jan. 2017.

skýrsla um aflandseignir og brot á siðareglum.

[15:12]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Þetta er spurning sem skiptir miklu, þ.e. umgengni um siðareglur og eftir atvikum viðurlög við broti á siðareglum. Hver fer með mat á túlkun slíkra reglna? Hér á Alþingi hefur myndast sú regla eða sú hefð að það er að töluverðu leyti undir þingmönnum sjálfum komið að tryggja framkvæmd reglnanna. Hér er spurt hvort ég telji að ávallt þurfi að vera ásetningi eða gáleysi til að dreifa til að brot teljist geta hafa átt sér stað. Nei, ég tel að það þurfi ekki í grundvallaratriðum ávallt að vera þannig. Það er ekki hægt að líta fram hjá því að hv. þingmaður setur málið í samhengi við tiltekið mál og veltir upp þeirri spurningu hvort þar hafi átt sér stað eitthvert brot á siðareglum. Þá finnst mér mikilvægt að halda nokkrum hlutum til haga, vegna þess að hér er því haldið fram að upplýsingum hafi verið haldið frá almenningi. Þannig er mál með vexti að það var ég sem fjármálaráðherra sem átti frumkvæðið að því að láta taka umrædd gögn saman. Í öðru lagi boðaði ég að gögnin yrðu lögð fyrir Alþingi og í þriðja lagi lagði ég gögnin fyrir Alþingi. Engu að síður halda menn áfram að halda því fram að einhverju hafi verið haldið leyndu fyrir almenningi. Það er auðvitað gert í þeim tilgangi að setja það í samhengi við kosningar. Þeir sem hafa haldið þeirri umræðu mest á lofti hafa ekki enn látið verða af því að útskýra hvaða efnisatriði það voru í þessari skýrslu sem hefðu mögulega átt að gefa mér tilefni til að halda einhverjum upplýsingum frá kjósendum í þessu landi.

En þegar skýrslan fékk kynningu í efnahags- og viðskiptanefnd heyrist mér á nefndarmönnum að það hafi komið mörgum býsna mikið á óvart hvert eiginlegt efnisinnihald skýrslunnar er, (Forseti hringir.) vegna þess að ég ætla að leyfa mér að efast um að margir af þeim sem hafa tekið stærst upp í sig vegna skýrslunnar hafi yfir höfuð haft mikið fyrir því að kynna sér efni hennar.