146. löggjafarþing — 18. fundur,  25. jan. 2017.

skýrsla um aflandseignir og brot á siðareglum.

[15:16]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki alveg hverju það á í sjálfu sér að skila að einn þingmaður tali við annan um það hvernig eigi að fara með siðareglur. Þetta eru reglur sem við setjum okkur sameiginlega. Við þurfum að hafa sameiginlegan skilning á því hvernig þeim verður fylgt eftir. Þetta er ekki spurning um samtal á milli mín og hv. þm. Ara Trausta Guðmundssonar. Þetta er spurning um skilning okkar sameiginlega hér í þessum sal um það hvernig við ætlum að tryggja eftirfylgni þeirra. Það er augljóst þegar kjörnir fulltrúar eiga í hlut að þeir eiga það að sjálfsögðu fyrst og fremst við þá sem þeir sækja umboð sitt til hvort þeir, þegar kemur að því að þeir þurfa að endurnýja það umboð, hafi farið eftir þeim reglum sem þeir hafa sjálfir undirgengist. Ég tek eftir því að viðkomandi hv. þingmaður er ekki í þessu tilviki að spyrja um viðurlög enda held ég að það sé ekki viðeigandi hér. En við brjótum reglur í þessu samfélagi niður í ýmsa flokka. Stundum erum við með lög. Í öðrum tilvikum verklagsreglur. (Forseti hringir.) Hérna erum við að ræða siðareglur. Þessir flokkar hafa hver sín sérkenni þegar kemur að eftirfylgni. Við getum til dæmis ekki leitað til dómstóla til að knýja fram efndir á siðareglum.