146. löggjafarþing — 18. fundur,  25. jan. 2017.

uppfylling kosningaloforða.

[15:20]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Óttarr Proppé) (Bf):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina sem var talsvert á heimspekilegum nótum sem gleður mig sérstaklega, fátt gleður mig meira en að velta fyrir mér siðferðilegum og heimspekilegum spurningum.

Ég tel orðræðu og kosningaloforð, eins og hv. þingmaður orðar það, fyrir kosningar vera mikilvægan hluta af framsetningu stjórnmálaflokka, stjórnmálaframbjóðenda fyrir kosningar og vera auðvitað það sem segir væntanlegum kjósendum, almenningi, í rauninni fyrir hvað viðkomandi stjórnmálamaður og -flokkur stendur. Hins vegar, eins og vel er þekkt, er fulltrúalýðræði á Íslandi þar sem stakur alþingismaður eða kjörinn fulltrúi ræður almennt ekki einn heldur í samvinnu við aðra sem hann annaðhvort deilir þingflokki með eða jafnvel deilir samstarfi milli þingflokka eins og t.d. í ríkisstjórnarsamstarfi.

Ég verð auðvitað að segja að þingmenn Bjartrar framtíðar, eins og vonandi annarra þingflokka hér á þingi, kjósa eftir sinni samvisku eins og þeim ber samkvæmt stjórnarskránni. En við töluðum oft um það, og höfum talað um það frá því að Björt framtíð var stofnuð, að þegar við ræðum málefni fyrir kosningar reynum við að tala um það sem áherslur, það sem við viljum berjast fyrir, en ekki loforð vegna þess að við gerum okkur grein fyrir því að í fæstum tilvikum munum við vera ein og sér með það vald að uppfylla þau loforð. Björt framtíð fékk ágæta kosningu en er eigi að síður einungis með fjóra þingmenn(Forseti hringir.) af 63, hefur þar af leiðandi augljóslega ekki meiri hluta til að knýja loforð sín í gegn án þess að vera í samvinnu við aðra.