146. löggjafarþing — 18. fundur,  25. jan. 2017.

innflutningur á landbúnaðarafurðum og loftslagsmál.

[15:25]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að óska hæstv. ráðherra til hamingju með embættið. Það voru fluttar margar fallegar ræður í gær. Allar áttu þær sameiginlegt að vera frekar fallegar. Fallegastar voru þó ræður stjórnarmeirihlutans, í þeim var að sjálfsögðu ekki neitt frekar en í stjórnarsáttmálanum. En hv. þingmaður og hæstv. ráðherra flutti hins vegar ræðu sem stakk svolítið í stúf við allar hinar fallegu ræðurnar, þ.e. ráðherrann var nokkuð ákveðin þegar hún ræddi þau málefni sem hún sagðist ætla að klára á þessu kjörtímabili.

Meðal annars sagði ráðherrann, með leyfi forseta:

„Við viljum innleiða grænt lágkolefnishagkerfi á Íslandi sem byggir á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda, fullnýtingu afurða og öflugri nýsköpun á sviði líftækni og hugvits.“

Síðan ræddi ráðherrann um losun gróðurhúsalofttegunda, að það yrði að stoppa hana með öllum tiltækum ráðum. En á sama tíma tala þingmenn, eða réttara sagt ráðherrar stjórnarmeirihlutans, um að nú þurfi að stórauka innflutning á landbúnaðarafurðum. Mig langar að spyrja ráðherrann hvernig þetta gangi upp. Hvernig gengur það upp í augum ráðherrans og huga að tala um lágkolefnishagkerfi, að fullnýta og klára að framleiða afurðir á Íslandi, um leið og á að stórauka innflutning á landbúnaðarafurðum, sem við getum framleitt hér?

Í öðru lagi talaði ráðherrann um mengandi stóriðju eða eitthvað slíkt. Mig langar líka að spyrja ráðherrann: Hvernig er skilgreint hvað má menga mikið? Hvers konar fyrirtæki eru það sem ekki mega menga eða mega menga? Hvað þýðir það? Er einhver ákveðin atvinnustarfsemi sem ekki má ráðast í sem telst til mengandi stóriðju? Erum við að tala um fyrirtæki sem nota 5 megavött eða 15 megavött? Hefur ráðherrann skilgreint hvað mengandi stóriðja er? Eru það bara álver? Eru það kísilver? Hvað á ráðherrann við?

Ekkert af þessu er ljóst í þessu annars fallega samkomulagi stjórnarflokkanna sem sjálfsagt er hægt að lesa upp fyrir börnin þegar þau fara að sofa því að þau botna ekkert í því frekar en við.