146. löggjafarþing — 18. fundur,  25. jan. 2017.

innflutningur á landbúnaðarafurðum og loftslagsmál.

[15:27]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Björt Ólafsdóttir) (Bf):

Virðulegi forseti. Það er gott að geta komið og skýrt fyrir hv. þingmanni stefnu ríkisstjórnarinnar hvað varðar loftslagsmál, græn mál, hvað varðar afnám ívilnandi fjárfestinga til mengandi stóriðju. Það er það sem við meinum þegar við segjum að við ætlum að hætta að styðja við þann iðnað. Ég veit eiginlega ekki hversu skýrar ég get komið því frá mér. Þegar þessi fyrirtæki hafa sett upp starfsstöðvar sínar á Íslandi hafa þau iðulega gert það í gegnum ívilnandi skattasamninga við ríkið og fengið afslátt af sköttum og gjöldum. Íslenskir skattgreiðendur hafa í staðinn borgað innviðauppbygginguna sem viðkomandi fyrirtæki hafa þurft. Nú ætlum við að segja stopp við þessu, ekki bara út af því að skattkerfið á að vera almennt heldur einna helst út af því við ætlum ekki að styðja við mengandi stóriðju. Þegar ég segi mengandi á ég auðvitað mest við þann iðnað sem er kolefnislosandi. Það eru t.d. álver og það eru líka t.d. kísilmálmver. Við gætum talið upp fleira ef okkur gæfist tími til en að þessu er sjónum helst beint.

Varðandi landbúnaðinn og spurningu hv. þingmanns, áður hæstvirts, er ljóst að landbúnaður á Íslandi er með mikla kolefnislosun. Að því þurfum við að vinna. Við munum gera það í samvinnu við bændur. Það er einn liður í þeirri aðgerðaáætlun (Forseti hringir.) í loftslagsmálum sem við munum vinna á þessu þingi. Ég veit að við hæstv. landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra munum vinna í fullu samráði og í fullu samráði við Bændasamtökin líka.