146. löggjafarþing — 18. fundur,  25. jan. 2017.

skýrsla starfshóps um eignir Íslendinga á aflandssvæðum og tekjutap hins opinbera.

[15:50]
Horfa

Smári McCarthy (P):

Frú forseti. Ég þakka fyrir umræðuna. Það er mjög gott mál að við séum að ræða þessa skýrslu, enda skýrslan sjálf góð.

Töluvert eignarhald Íslendinga í skattaskjólum er verulegt áhyggjuefni, en í það glittir í skýrslunni. Í skýrslunni er reynt að meta umfang eigna í skattaskjólum og fjárhæðirnar sem gæti hafa verið skotið undan með ólögmætri milliverðlagningu, með eignastýringu og óskráðum fjármagnstilfærslum. En skattaskjól eru ekki séríslenskt vandamál. Það er nokkuð ljóst að þau munu ekki verða upprætt nema með víðtækri, alþjóðlegri samvinnu. Ætlað er að minnst 130 milljarðar dollara hverfi úr þróunarlöndunum í skattaskjól á hverju ári. Því má ætla að uppræting skattaskjóla sé hagsmunamál fyrir fleiri en Íslendinga.

Lönd heimsins í dag eru öll ýmist skattaskjól, stuðningsríki skattaskjóla eða eru hlutlaus gagnvart þeim. En mér þykir full ástæða til að Ísland marki sér þá sérstöðu að veita skattaskjólum viðspyrnu með löggjöf sem dregur úr gagnsemi þeirra. Það eru eðlileg skipti því að það á ekki að þykja sjálfsagt að stunda viðskipti í löndum sem grafa með utanríkisstefnu sinni, sem þetta er, undan getu annarra ríkja til að viðhalda innviðum sínum.

Þekkt er að ein helsta ástæða þess að skattaskjól og aflandsfélög hafa náð að þrífast er ógagnsæi og leynd um eignarhald fyrirtækja. Mig langar að spyrja fjármála- og efnahagsráðherra hvort ekki standi til að bregðast við skýrslu um aflandseignir Íslendinga með því að taka upp löggjöf sem vinnur beinlínis gegn skattaskjólum, m.a. með því að opna fyrirtækjaskrá og ársreikningsskrá og hluthafaskrár fyrirtækja upp á gátt. Þess má geta að það hefur verið gert nýlega í Bretlandi með ágætisárangri. Þá kom meðal annars í ljós að hin 21 árs gamla Gabrielle Southern er í stjórnum minnst 759 fyrirtækja og hin áttræða Barbara Kahan hefur verið í stjórnum 44.864 (Forseti hringir.) fyrirtækja. Það þykir mér nokkuð merkilegt og kemur ýmislegt áhugavert upp úr krafsinu þegar gögn eru opnuð.