húsnæðismál.
Virðulegi forseti. Enn og aftur grípum við til einhverra ráðstafana eftir á, eftir að vandinn kemur upp. Eins og komið hefur fram er byggingarmarkaðurinn í miklu ójafnvægi. Undanfarinn áratug höfum við verið stefnulaus í ferðaþjónustu sem hefur veruleg áhrif á húsnæðisvanda, sérstaklega leigumarkaðinn þar sem stór hluti leiguhúsnæðis fer í skammtímaleigu til ferðamanna og skekkir markaðinn.
Það sem ég fagna þó og vil líka ítreka er sveitarstjórnarvinkillinn og samstarf sveitarfélaganna við ríkið sem mér hefur alltaf þótt skorta mikið á. Án þess að fara beint í greiningu á þeim kerfisbreytingum sem eru í gangi með lögum um almennar íbúðir, þar sem er verið að innleiða nýtt kerfi, ég ætla ekki að leggja mat á það endilega hér en ég vil nota tækifærið og leggja áherslu á samstarf sveitarfélaga vegna þess að hvert og eitt sveitarfélag er með sína stefnu í húsnæðismálum. Það sem mig langar að koma inn á er leigumarkaðurinn, almenni markaðurinn og félagslegi markaðurinn. Við erum með alls konar kerfi í gangi sem varða beint þetta málefni sem við erum að ræða akkúrat hér. Sveitarfélögin eru á fullu í þessu úrræði en það er aldrei samráð við ríkið í þessum málefnum. Ég kalla eftir því. Reyndar er mikill vilji í þessari ríkisstjórn til að hafa aukið samráð við sveitarfélögin varðandi þennan markað og ég fagna því en það sem sveitarfélögin eru með er skipulagsvaldið, úrræðin og nærþjónustuna. Þau hafa boðið upp á ýmis úrræði sem hreinlega varða leigumarkaðinn, félagslega markaðinn, ungt fólk, (Forseti hringir.) barnafjölskyldur og börn.