húsnæðismál.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja að þakka hv. þm. Loga Einarssyni fyrir að hefja þessa umræðu. Hún er sérstaklega mikilvæg í ljósi þess að í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar undir forustu Sjálfstæðisflokksins er ekkert fjallað um húsnæðismál. Eins og hv. þm. Eygló Harðardóttir hef ég einnig leitað með hjálp tölvunnar að orðinu húsnæði og niðurstaðan skilaði engu.
Á síðasta kjörtímabili þegar Framsóknarflokkurinn veitti forustu í ríkisstjórn var lögð mikil áhersla á húsnæðismál. Unnið var að bættum hag heimilanna í gegnum leiðréttinguna, komið til móts við unga fólkið með aðgerðinni Fyrsta fasteign og unnið að styrkingu húsnæðissamvinnufélaga. Jafnframt var unnið að miklum úrbótum og undirbúningi að uppbyggingu á öruggum leigumarkaði með það að markmiði að á fjórum árum yrðu byggðar 2.300 leiguíbúðir. Skemmst er frá því að segja að leigumarkaðsmálin voru unnin í þverpólitískri sátt á Alþingi síðasta vor.
Það voru reyndar gerðar miklar breytingar á málinu í hv. velferðarnefnd þegar málið var til umræðu þar og m.a. komið til móts við landsbyggð, kaldari svæði þar sem lánveitingar hafa verið erfiðar undanfarin ár. Það var ákvörðun í þverpólitískri sátt meðal allra hv. nefndarmanna að auka við stofnstyrki til þeirra svæða sem kostar meira fjármagn inn í kerfið.
Vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi kynnt sér þann kostnaðarauka sem það hefur í för með sér og hvort hann muni tryggja að það fjármagn skili sér inn í það að halda áfram með þetta verkefni sem fyrri ríkisstjórn kom á. Það skiptir mjög miklu að þetta sé allt haft með. Þau mál sem ég taldi upp áðan voru ein af megináherslum fyrri ríkisstjórnar, því að við vitum öll að við þurfum að hafa mismunandi búsetuform hér á landi og fólk þarf að hafa val um hvort það búi í eigin húsnæði, í leiguhúsnæði eða fari (Forseti hringir.) millileiðina í hin húsnæðissamvinnufélögin. Ég næ ekki að klára allt sem ég ætlaði að segja.