146. löggjafarþing — 20. fundur,  31. jan. 2017.

dráttur á birtingu tveggja skýrslna.

[13:35]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg):

Frú forseti. Mér rennur blóðið til skyldunnar að fara hér upp því ég held að ég hafi komið a.m.k. þrisvar sinnum á síðasta þingi að óska eftir því að Alþingi ræki á eftir því að þáverandi hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra skilaði skýrslu í takti við þá skýrslubeiðni sem var samþykkt hér 15. október 2015. Eins og kom fram hjá hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur ítrekaði ég þessa ósk í október 2016, hafandi margoft komið upp og ítrekað málið. Ég veit að hæstv. þáverandi forseti þingsins kom þeim skilaboðum á framfæri til fjármála- og efnahagsráðuneytis. Í ljósi þess að skýrslan sem svo marga mánuði tók að útbúa en var á endanum heilar átta blaðsíður spyr maður sig: Hvað tafði málið? Var það kannski tregða við að upplýsa nákvæmlega hvernig stærsta kosningamál síðustu ríkisstjórnar kom á endanum út gagnvart öllum almenningi í landinu? (Forseti hringir.) Það er umhugsunarefni fyrir Alþingi Íslendinga að hægt sé að draga þingmenn á svörum eins og hér hefur verið gert og algerlega óboðlegt, frú forseti.