146. löggjafarþing — 20. fundur,  31. jan. 2017.

dráttur á birtingu tveggja skýrslna.

[13:45]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Það að hæstv. forsætisráðherra hafi orðið uppvís að því að fela mjög mikilvægar skýrslur um háalvarleg og hápólitísk mál fram yfir kosningar og stjórnarmyndunarviðræður hlýtur að draga dilk á eftir sér. Það er mjög alvarlegt mál.

Hér kemur hæstv. ráðherra í ríkisstjórn forsætisráðherra og ver feluleikinn, ver fúskið, allt í boði Bjartrar framtíðar og í anda þess ágæta flokks, vænti ég.

Ég lít á þennan atburð sem svindl, ég lít á það þannig að hæstv. forsætisráðherra hafi snúið á þingið og þjóðina með því að fela þessar skýrslur á þeim tíma þegar á þeim þurfti að halda í aðdraganda kosninga og í stjórnarmyndunarviðræðum. Þetta er alvarlegt mál. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)